|
Félagshæfnissögurnar hennar Gabríellu Kamí
|
|
|
Hérna er listi með sögunum hennar Gabríellu |
Við erum að prófa að nota félagshæfnissögur fyrir Gabríellu Kamí. Félagshæfnissögur eru sögur sem hjálpa henni að læra á daglegt líf. Hún er búin að vera að nota þær síðan í byrjun Mars 2004. En sem komið er hafa þær virkað vel. Við fengum upphaflega í hendurnar sögur sem aðrir höfðu samið (biðjumst velvirðingar ef einhverjum sárnar að sögurnar sínar séu birtar hér) og aðlöguðum þær síðan að Gabríellu Kamí. Við fengum líka myndir og fleira "lánað" á vefnum. Fyrir okkur hefur þetta virkað mjög vel. Hún er með sögurnar sínar í lítilli bók sem hún tekur með sér hvert sem hún fer. Henni finnst rosa gaman að lesa þær í bílnum. Gabríella þarf að hafa mikið af myndum því að hún á svo erfitt með að mun orð en hún man mjög auðveldlega myndir. Þannig að sögurnar hennar eru sennilega með meiri myndum en flestir hafa. Þar sem að það fer töluverð vinna í að finna myndir og pikka inn sögurnar þá ákvað ég að setja okkar sögur hérna inn þannig að hver sem er hefur mitt leyfi til að nota þær. Eins ef einhver hefur sögur sem hann á þá vil ég endilega fá þær þar sem við komum að öllum líkindum til með að nota sögurnar áfram. Og það er ekki eins auðvelt að búa þær til eins og það lítur út fyrir Það mega allir nota okkar sögur Bryndís Sumarliðadóttir er að fara að gefa út bók með sínum sögum eða réttara sagt mun Umsjónarfélag einhverfra verða útgefandi að bókinni og allur ágóði rennur til félagsins. Ásgerður Ólafsdóttir mun skrifa formála í þá bók, þar sem fram koma nýjustu leiðbeiningar um gerð félagshæfnisagna. Félagshæfnisögur (Social Stories) eru hugmyndafræði Carol Gray .
|
![]()
![]()