Skattalækkun og lækkun á útsvari.

  Umsókn um lækkun
Hjá skattstjórum skulu liggja frammi umsóknareyðublöð fyrir umsókn um ívilnun samkvæmt 66. gr. og 80. gr. Á þeim skal koma greinilega fram hvaða gögn þurfa að fylgja umsókn. Maður sem sækir um ívilnun þarf að leggja fram fullnægjandi upplýsingar á þar til gerðum eyðublöðum eða á annan hátt. Ákvörðun skattstjóra um ívilnun samkvæmt umsókn með skattframtali er kæranleg til skattstjóra. Kæruúrskurði skattstjóra varðandi ívilnun má áfrýja til ríkisskattstjóra.
Skattstjóri skal taka umsóknir um lækkun skv. 66. og 80. gr. til umfjöllunar þótt þær berist eftir lok kærufrests.
Lækkun skv. 2. tl.
Veikindi eða fötlun barns sem haldið er langvinnum sjúkdómum
Skilyrði fyrir lækkun skv. þessum tölulið er að maður hafi veruleg útgjöld umfram venjulegan framfærslukostnað vegna barns sem haldið er langvinnum sjúkdómum eða er fatlað. Með verulegum útgjöldum er átt við þann kostnað sem er umfram fengnar bætur, styrki og lífeyri sem greiddur er vegna kostnaðar sem af þessum tilvikum leiðir. Með kostnaði í þessu sambandi er átt við dvalarkostnað á stofnunum, lyfja- og lækniskostnað, kostnað vegna ferða, ýmiss konar sérútbúnaðar vegna fötlunar o.s.frv. Sýna þarf fram á að um óhjákvæmilegan kostnað sé að ræða og leggja fram gögn til staðfestingar á honum.
(tekið af rsk.is)

Það er líka hægt að sækja um lækkun á útsvari hjá sveitafélaginu.  Þá er sett saman bréf þar sem tekið er til sá kostnaður sem hlotist hefur af veikindum barnsins og þær bætur sem viðkomandi hefur fengið.  Bréfið er síðan sent til útsvarsnefndar. 

Eftir að það er búið að taka þessi tvö mál til umhugsunar þá er hægt að áfrýja til Ríkisskattstjóra.  Yfirleitt veitir hann pínu lækkun í viðbót. 

Með þessum umsóknum þarf að fylgja læknisvottorð.  Og gott er að gera greinargerð þar sem kemur fram kostnaður og helst að flokka hann niður, í lækniskostnað, lyf, hjúkrunarvörur og annað.  Það sakar líka ekki að tiltaka óbeinan kostnað, bensínkostnað og vinnutap (bara hjá þeim aðila sem vinnur ekki úti).  Reglan er sú að  taka alltaf nótu þegar eitthvað er verslað bein fyrir barnið þannig að ef skattstjóri vill fá að sjá staðfestingu á kostnaðinum, að þú getir þá sýnt fram á hann.  

 

 

ForsíðaGestabókAlbúmVefdagbókDV greinarFélagshæfnissögurnarÞingmennirnir okkarFalleg orð
Allt um AnikuAllt um GabríelluRáð fyrir foreldra veikra barna