Þingmennirnir okkar

 

Listi yfir þingmennina okkar:

Sigurjón Þórðarson

Margrét Frímannsdóttir

Jónína Bjartmarz

Guðlaugur Þór Þórðasson

Drífa Hjartadóttir

Sigríður Anna Þórðadóttir.

Valdimar L. Friðriksson

 

Hérna er yfirlit yfir allt það sem sagt hefur verið um okkur á Alþingi: (bara að smella á bangsann)

 

 

 
Þegar við fórum af stað til að berjast fyrir réttindum og viðurkenningu á Goldenhar þá sendum við öllum þingmönnum og fólki sem var staðsett á "réttum" stöðum bréf (email).  Þetta bréf fór út 1. ágúst 2003.  Síðan tók við svolítill biðtími en við fegnum svör frá svona um það bil helming.  Eftir það fórum við að hitta nokkra þingmenn.

Fyrst til að funda með okkur voru Sigurjón Þórðarson og Margrét Sverrisdóttir.

Eftir það funduðum við með Ingibjörgu Georgsdóttir (barnalækni TR) og Jóni Sæmundi Sigurjónssyni (Heilbrigðisráðuneytinu).

Stuttu síðar var fundur með Margréti Frímannsdóttur fyrir hönd Samfylkingarinnar (en þar höfðu margir lýst áhuga á að hitta okkur) og hún hjálpaði okkur mikið við að skipuleggja það sem eftir var af ferlinu.

3. september funduðum við með ráðherrum Félagsmálaráðuneytis og Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis.  Á fundi með Jóni Kristjánssyni var heil hersing af fólki og týndumst við eiginlega í fjöldanum, fyrir utan þá staðreynd að við fengum um 20 mín. með honum.  Seinna sama dag hittum við Árna Magnússon og áttum við hann langt spjall. 

Síðan funduðum við með Jónínu Bjartmarz fyrir hönd Framsóknarflokksins.

12. nóvember eru okkar mál tekin upp á Alþingi að frumkvæði Margrétar Frímannsdóttur en með stuðning fleirri þingmanna.

Í desember fengum við loksins fund með Sjálfstæðismönnunum Guðlaugi Þór Þórðasyni, Drífu Hjartadóttir og Sigríði Önnu Þórðadóttur.  Og fengum þar tækifæri til að kynna þeim sjónamið okkar.  Guðlaugur Þór bókaði síðan annað viðtal sama dag við Margréti Einarsdóttur varaborgafulltrúa en hún situr einmitt í kærunefnd Félagsmála hjá Reykjavíkurborg.  Og skilaði sá fundur miklum árangri.

Frá nóvember og fram í mars voru stöðug símtöl að fara á milli okkar og Félagsmálaráðuneytisins og niðurstaðan úr þeim er yfirlýsing sem Félagsmálaráðuneytið sendi okkur.  Fram að miðjum nóvember náðum við í Heilbrigðisráðuneytið en eftir það hefur ekki náðst í neinn þar.

17. mars 2004 eru við síðan aftur í umræðunni á Alþingi að þessu sinni að frumkvæði Valdimari L. Friðrikssonar.  Sigurjón Þórðason tók líka til máls þá.

Á þessum tíma fóru fram 4 viðtöl við okkur hjá Þorgeiri Ástvalds í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni (hann reyndist okkur alveg æðislega) og viðtal hjá Arnþrúði Karls.  Við komum fram í Íslandi í dag og viðtalssyrpa var í DV og í framhaldi í Fréttablaðinu (okkar heppni var að DV fór á hausinn á meðan á þessu stóð).

 

 

ForsíðaGestabókAlbúmVefdagbókDV greinar
FélagshæfnissögurnarÞingmennirnir okkarRáð fyrir foreldra veikra barna
Allt um AnikuAllt um GabríelluFalleg orð